Og klaufi dagsins er...
Kjáninn! Einhver verður að taka við þar sem
Klaufastrumpur er ekki á landinu! Ég byrjaði sem sagt daginn á að missa af strætó, TVISVAR, og kom þ.a.l. korteri of seint í miðannarpróf í hlustun, ekki sniðugt!! Ég endaði svo skóladaginn á að hella úr heilum kaffibolla á gólfið í kaffistofu stúdenta í Háskólabíó! Maður er alltaf að slá í gegn! (",)
|